„Ég hef enga ákvörðun tekið um hvað tekur við. Ég náði ekki þeim árangri sem ég ætlaði mér og það eru vonbrigði. En ég geri þó ráð fyrir að ég ljúki þeim störfum sem ég var kosin til að gegna í borginni,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Í ræðu sinni óskaði hún Bjarna Benediktssyni til hamingju með kjörið og hvatti fólk til að fylkja sér á bak við Sjálfstæðisflokkinn.
MBL Sjónvarp ræddi við Hönnu Birnu eftir að úrslitin lágu fyrir.