Meta ekki Vaðlaheiðargöng

Kristján Möller er mágur Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda
Kristján Möller er mágur Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda mbl.is/Friðrik Tryggvason

Ríkisendurskoðun hefur hafnað beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að gera arðsemismat á Vaðlaheiðargöngum. Ríkisendurskoðandi telur það ekki vera lögbundið verkefni stofnunarinnar, auk þess sem hann sé vanhæfur vegna fjölskyldutengsla við Kristján Möller alþingismann. Þetta kom fram í fréttum RÚV í hádeginu.

Arðsemi fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og sýnist sitt hverjum.

Fyrir tæpum tveimur vikum óskaði umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis eftir því við Ríkisendurskoðun að stofnunin endurmæti forsendur Vaðlaheiðarganga ehf. fyrir því að göngin borguðu sig sjálf. Sagði formaður nefndarinnar nauðsynlegt að fá hlutlægt mat á forsendunum.

Ríkisendurskoðun hefur svarað þessari beiðni með bréfi til forseta Alþingis, þar sem stofnunin biðst undan því að taka verkefnið að sér. Í svarinu segir að slíkt arðsemismat kunni að ráða úrslitum um það hvort ráðist verði í framkvæmd við Vaðlaheiðargöng eða ekki.

Það sé hins vegar ekki lögbundið hlutverk stofnunarinnar að gera slíkt mat, heldur einungis að endurskoða ríkisreikning og ársreikning ríkisaðila og að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga.

Þá kemur einnig fram í svarinu að Sveinn Arason ríkisendurskoðandi tengist Kristjáni Möller, alþingismanni og stjórnarmanni Vaðlaheiðarganga ehf., fjölskylduböndum, en þeir eru mágar. Sveinn sé því vanhæfur til þess að sinna verkefninu. Þá myndu einnig vakna spurningar um áhrif vanhæfis Sveins á hæfi annarra starfsmanna stofnunarinnar í ljósi reglna um undirmannsvanhæfi.

Í svarinu kemur þó fram það mat Ríkisendurskoðunar að stjórnvöld þurfi ávallt að láta vinna ítarlega greiningu á arðsemi og áhættu kostnaðarsamra samgönguframkvæmda áður en þau ráðast í slíkar framkvæmdir. Æskilegt sé að slíkt mat sé unnið af óháðum aðila. Bendir stofnunin á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í því sambandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert