„Ég var mjög ánægður með að kosið skyldi til formanns þó að ég hafi ekki verið ánægður með niðurstöðuna sem ég að sjálfsögðu hlíti og styð Bjarna sem hingað til,“ skrifar Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sína.
„Þetta breytir ekki miklu fyrir stöðu mína í þingflokknum sem menn hafa nú löngum tekið eftir og bent mér á að er ekki mjög áberandi,“ skrifar Pétur ennfremur.