Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að synja að svo stöddu tillögu húsafriðunarnefndar um friðun Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfis þeirra eins og lagt er til í bréfi nefndarinnar.
Hefur ráðherra farið þess á leit við nefndina að hún taki málið til efnislegrar meðferðar með hefðbundnum hætti áður en afstaða verður tekin til tillögu um friðun.
Húsafriðunarnefnd ákvað 8. nóvember að skyndifriða Skálholtskirkju, Skálholtsskóla og nánasta umhverfi. Sagði framkvæmdastjóri nefndarinnar þá að það þýddi að stöðva yrði framkvæmdir við endurbyggingu Þorláksbúðar við kirkjuna.
Fram kemur á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins að húsafriðunarnefnd hafi lagt það til í bréfi dagsettu 16. nóvember að húsin í Skálholti og nánasta umhverfi þeirra yrði friðað.