Björgólfur Thor Björgólfsson er ósáttur við myndina Thors Saga sem sýnd var í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld. Þetta kemur fram á vef Björgólfs.
„Ég get vel skilið að frændi minn, Guðmundur Andri Thorsson sé ósáttur við myndina Thors Saga. Myndin er fjarri því að vera eins og ég hélt að hún yrði. Ég stóð í þeirri trú að áherslan yrði fyrst og fremst á langafa okkar, Thor Jensen. Hins vegar fékk ég engu ráðið um útkomuna, fremur en aðrir sem samþykktu að koma fram í myndinni.
Eftir að ég varð þess áskynja að myndin hefði vikið svo mjög frá því sem mér var upphaflega sagt ákvað ég að vera ekki viðstaddur frumsýningu hennar í Kaupmannahöfn í september. Ég ætlaði mér aldrei að vera í aðalhlutverki í myndinni og er ósáttur við hvernig það myndefni, sem fjölskylda mín lét í té, var notað úr öllu hófi. Mér finnst það rýra myndina hve mikið vægi nýliðnir atburðir hafa, á kostnað þess að fram náist góð heildarsýn yfir liðna tíð," skrifar Björgólfur Thor á vef sinn.