Samningurinn „ákveðin tímamót“

Samningur undirritaður milli Félags leikskólakennara og Sigöldu ehf.
Samningur undirritaður milli Félags leikskólakennara og Sigöldu ehf.

Skrifað var undir kjarasamning milli Félags leikskólakennara og Sigöldu ehf., sem rekur leikskólann Aðalþing í Kópavogi, í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem gerður er sérstakur samningur við leikskóla í einkarekstri. 

Við undirritun kjarasamningsins lét Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, þess getið að það hafi aldrei áður gerst í sögu stéttarfélagsins að gerður sé sérstakur kjarasamningur sem ekki er eftirmynd af samningi félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga og væru það ákveðin tímamót. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Haraldur gat þess jafnframt að félagið hafði látið reikna út kjarabætur sem kennarar í Aðalþingi fá umfram þær launahækkanir sem eru í samningnum við sveitarfélögin. Haraldur sagði að þessar hækkanir væru umtalsverðar enda hlaupa þær á sex til átta launaflokkum eða um 9 til 12 prósentum.

Guðrún Alda Harðardóttir leikskólakennari, sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd Sigöldu ehf., sagði að leikskólinn Aðalþing væri rekinn samkvæmt þjónustusamningi við Kópavogsbæ og það væri markmið samningsins að gefa börnum kost á að njóta handleiðslu sérmenntaðs fólks í uppeldisfræðum og að þróa, efla og auðga leikskólastarf í Kópavogi með því að leita nýrra leiða.

Guðrún sagði að með því að gera kjarasamning sem er sérlega hagstæður leikskólakennurunum væri reynt að uppfylla þessi mikilvægu markmið þjónustusamningsins. Vonast væri til þess að hlutfall menntaðra kennara í starfsliði skólans hækki enda hljóti kjarasamningurinn að leiða til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert