Samkomulag náðist við vélstjóra á Herjólfi um launakröfur þeirra og þar með falla þeir frá vinnustöðvun sem boðuð var dagana 25., 26. og 27. nóvember 2011.
Þetta kemur fram kemur á vef Eimskips.
Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fram til miðvikudagsins 30. nóvember. Ástæðan er dýpi í Landeyjahöfn og óhagstæð ölduspá næstu viku að sögn Eimskips.