Allir kaflar verði opnaðir á næsta ári

Össur Skarphéðinsson ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur.
Össur Skarphéðinsson ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur. mbl.is/Ernir

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa lagt á það áherslu að þegar Danir taka við formennsku í ESB á næsta ári þá verði allir samningskaflar sem eftir séu í viðræðum um aðild Íslands ESB opnaðir. Hann er ekki viss um að það takist að ljúka samningaviðræðunum fyrir þingkosningar 2013.

Það kynni hins vegar að takast eins og gangurinn sé núna í viðræðunum og ef menn hafa samræmt göngulag. Þetta kom fram á opnum fundi utanríkismála- og atvinnuveganefndar Alþingis. Þar var rætt um stöðu viðræðnanna, einkum er varðar samningskafla um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál.

Hvað varðar viðræður um sjávarútvegsmál þá segir Össur að þær séu ekki hafnar, enda endurskoðun í gangi hjá ESB á sameiginlegu fiskveiðistefnunni. „Af þeim ástæðum er ESB ekki á þessu stigi í stakk búið að hefja viðræðurnar. Þannig að ég get ekki sagt til um það hvenær þær byrja. Ég hef lagt mjög mikla áherslu á það, og forsætisráðherra líka við Barroso [forseta framkvæmdastjórnar ESB] þegar hún hitti hann, að það gerist á næsta ári.“

Við fyrirspurn Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sagði Össur að hann væri ekki sammála því að það felist sérstök aðlögun í því að loka samningsköflum í viðræðum um aðild Íslands að ESB.

Össur segir að farið hafi verið eftir fyrirfram ákveðnu ferli í viðræðunum. Fyrsti kafli hafi falist í því að sýna ESB fram á að Ísland uppfylli skilyrðin. Því sé nú lokið. Næsti kafli um rýnivinnu, þar sem löggjöf ESB og Íslands hafi verið borin saman, sé einnig lokið. Þetta hafi verið tímafrekustu kaflarnir og dýrastir.

Þriðja lotan sé nú hafin sem séu samningarnir sjálfir.

„Núna erum við búin að opna sex kafla og við höfum lokið fjórum. Við höfum lokið sjö samningsafstöðum og gerum okkur vonir um það á fundinum, sem verður núna í desember, þá verði a.m.k. fimm opnaðar og hugsanlega einhverjum lokið,“ sagði Össur.

Hann segir að ferlið hafi gengið nokkuð hratt fyrir sig.

Össur segir að það hafi komið sér á óvart hve ESB hafi sýnt mikinn skilning í viðræðunum við Ísland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert