Truflanir hafa verið á netsambandi í kvöld vegna bilunar á internetsambandi við útlönd. Bilunarinnar varð fyrst vart skömmu fyrir kl. 21 í kvöld.
Bilunin birtist netnotendum með þeim hætti að erfitt er að komast inn á sumar síður eða langan tíma tekur að ná sambandi.
Að sögn Margrétar Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans, er unnið að viðgerð. Hún sagði um kl. 21.30 að það væri mat tæknimanna að ástandið væri að batna.