Framsóknarmenn viðbúnir kosningum

Hægt er að sækja um rafrænt til Þjóðskrár um að …
Hægt er að sækja um rafrænt til Þjóðskrár um að vera áfram á kjörskrá. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Þeir sem flutt hafa utan fyrir 1. desember 2003 detta út af kjörskrá á næsta ári ef þeir sækja ekki sérstaklega um að vera áfram á kjörskrá. Framsóknarflokkurinn vekur athygli á þessu á heimasíðu sinni undir fyrirsögninni „Verum viðbúin kosningum á næsta ári“.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosningarrétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á kjörskrá þann tíma.

Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarrétti. Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 2003 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Þjóðskrár fyrir 1. desember 2011, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir til 1. desember 2015. Kosningarréttinn þarf að endurnýja með nýrri umsókn eftir 1. desember ári áður en hann fellur niður.

Umsókn skal senda Þjóðskrá en eyðublöð fást í sendiráðum Íslands erlendis, sendiræðisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefndum við alþjóðastofnanir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Þjóðskrár og á heimasíðu hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert