Fundur aðalstjórnar Öryrkjabandalags Íslands, sem haldinn var í dag, mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja sem fyrirhugaðar eru af hálfu ríkisstjórnar Íslands og birtast m.a. í frumvarpsdrögum velferðarráðuneytisins.
„Öryrkjabandalagið krefst þess að ríkisstjórnin hverfi þegar í stað frá áformum sínum um enn frekari árásir á lífskjör öryrkja fjórða árið í röð. Öryrkjabandalagið hvetur öryrkja og aðra landsmenn til að fylgjast grannt með framvindu mála næstu daga og vikur,“ segir í ályktun fundarins.