Veður er nú að ganga niður á Hellisheiði að sögn lögreglunnar á Selfossi, sem telur að á milli 10 og 15 bílar hafi farið út af á heiðinni og í Þrengslunum í morgun. Ekki hafa verið tilkynnt slys eða meiðsli á fólki, en lögregla telur að nokkrir bílar hafi orðið fyrir minniháttar skemmdum. Björgunarsveitir voru kallaðar út til aðstoða lögreglu þegar veður var sem verst.
Einn bíll valt neðst í Þrengslunum og annar fauk á hliðina efst í Þrengslum, við Suðurlandsveg. Enn eru nokkrir bílar fyrir utan veg, en lögregla telur að þeir muni ekki skapa hættu í umferðinni.
Lögreglan á Selfossi segir að einhverjir ökumenn hafi þurft að bíða í bílum sínum í eina til tvær klukkustundir í morgun, en engum orðið meint af.