190 gjaldþrot í október

Gjaldþrot fyrirtækja 2009-2011.
Gjaldþrot fyrirtækja 2009-2011. www.hagstofa.is

Flest gjaldþrot í október voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. 144 ný einkahlutafélög (ehf) voru skráð í mánuðinum samanborið við 133 einkahlutafélög í október 2010.

Í október 2011 voru 190 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 96 fyrirtæki í október 2010.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 10 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 1.312 sem er um 69% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 776 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Flest einkahlutafélög voru skráð í heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 1.365 fyrstu 10 mánuði ársins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert