„Ríkisstjórnin hefur sjaldan staðið veikar en einmitt núna,“ segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri. Hann telur væringar milli stjórnarflokkanna fordæmalitlar og nú reyni á lagni forystumanna ríkisstjórnarinnar að lempa mál.
Á föstudag ákvað Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra að synja ósk Kínverjans Huang Nubo um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og á laugardag voru birtar á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins punktar starfshóps á vegum Jóns Bjarnasonar ráðherra um breytingar á kvótakerfinu. Sú framsetning mælast illa fyrir en þó ekki síður framganga ráðherrans sjálfs, sem þykir ekki vera í samræmi við markaða stefnu ríkisstjórnarinnar.
„Í stjórnmálum er þekkt að menn spila oft frítt á síðari hluta kjörtímabils eða þegar kosningar nálgast. Atburðarás helgarinnar ber svip af þessu; menn reyna eftir megni að skapa sér sérstöðu,“ segir Birgir sem telur ósennilegt að væringarnar nú leiði til stjórnarslita á allra næstu dögum. Hitt sé þó ljóst að veruleg þreyta sé komin í samstarf ríkisstjórnarflokkanna og mál geti því þróast á ýmsa vegu. Báðir stjórnarflokkarnir hljóti því að hugsa í anda þess sem skáldið kvað, að alltaf megi fá annað skip og annað föruneyti.