Friðriki J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, líst afar illa á breytt drög að lögum um stjórn fiskveiða sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið kynnti í gær.
„Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir allt of stuttum samningstíma eða einungis 20 árum. Ég bendi á að síðasta vetur kom fram frumvarp um styttingu afnotatíma orkufyrirtækja, sem nýta vatn og jarðhita annars vegar í 30 ár og hinsvegar í 40 ár, sem fékk afar slæmar viðtökur og varð ekki að lögum,“ sagði Friðrik við Fréttavef Morgunblaðsins í morgun.
„Í öðru lagi þá eru ákvæði um framlengingu afnotasamninga ekki nægjanlega skýr. Við þurfum nú að fá mat á því hvort tillögurnar þýða að við þurfum að afskrifa keyptar aflaheimildir að verðmæti 212 milljarða með tilheyrandi afleiðingum á efnahag fyrirtækjanna.“
Friðrik segir tillögurnar gera ráð fyrir að allt of stór hluti aflaheimilda verði tekinn framhjá aflahlutdeild „til pólitískra úthlutana, meðal annars til svokallaðra strandveiða, byggðakvóta og línuívilnunar. Til viðbótar þá á að taka 50% aflaaukningar frá þeim sem hafa tekið á sig skerðingar í þorski, ýsu, ufsa og steinbít þegar ákveðnu viðmiði hefur verið náð, sem er algjörlega óásættanlegt. “
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir veiðigjaldið grundvallaratriði sem skilið sé eftir óleyst en fram kemur að verið sé að vinna að því máli á öðrum vettvangi. „Þær hugmyndir sem kynntar hafa verið í því efni gera ráð fyrir ofurskattlagningu með tilheyrandi lamandi áhrifum á atvinnugreinina,“ segir hann.
„Þá eru í frumvarpsdrögunum ákvæði sem miða að því að ákveðið fyrirtæki verði brotið upp og eins að ákveðnum fyrirtækjum verði gert að selja frá sér aflaheimildir. Fjölmörg önnur atriði eru í drögunum sem mér líst illa á, svo sem ákvæði um svokallað Kvótaþing, óskýr og matskennd ákvæði um ákvörðun aflahlutdeildar, ákvæði um takmörkun á framsali aflahlutdeildar og aflamarks og mikið framsal á valdi til ráðherra sem full ástæða er til að gjalda varhug við,“ segir Friðrik J. Arngrímsson.