Auðlindum þjóðarinnar komið í skjól

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist taka heils hugar undir orð Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, að það sé eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda að koma auðlindum þjóðarinnar í skjól.

Ögmundur segir að Guðfríður Lilja hafi tekið lofsvert frumkvæði með því að leggja fram þingmál sem muni ryðja brautina fyrir endurskoðun laga um eignarhald á landi. Hún vilji að skorður verði reistar við stórfelldum uppkaupum á landi og vilji í því sambandi horfa til sérstöðu vegna umhverfisþátta. Þetta skrifar Ögmundur á bloggvef sinn.

„Víðernin eiga að vera í almannaeign,“ hefur Ögmundur eftir Guðfríði Lilju.

„Guðfríður Lilja vill jafnframt horfa til þess að fjársterkir einstaklingar, hverrar þjóðar sem þeir eru, sölsi ekki undir sig margar jarðeignir og stór landsvæði. 
Hún segir málið ekki snúast um uppruna manna en hins vegar sé þýðingarmikið að halda víðernum í almannaeign og yfirráðum yfir landi og auðlindum innan samfélagsins. Það sé kjarni málsins. Þetta sé í samræmi við viðleitni margra þjóða og ekki síður ástæða til fyrir okkur sem búum við veika auðlindalöggjöf að sýna varkárni,“ segir Ögmundur.

Hann bendir á að í útvarpsviðtali í morgun á Rás 2 hafi hún sagt að eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar væri að koma auðlindum þjóðarinnar í skjól.

„Undir þetta skal heilshugar tekið. Var gott að heyra áherslur Skúla Helgasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í sama þætti, en í sinni málefnabaráttu hefur hann lagt áherslu á umhverfisvernd og sýnt vilja til að standa vörð um auðlindir þjóðarinnar. Hann kom mér því ekki á óvart í mjög jákvæðum málflutningi sínum í morgun,“ skrifar Ögmundur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert