„Ég er enn ráðherra,“ sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þegar hann kom út af þingflokksfundi VG í dag. Hann sagði að hann nyti stuðnings þingflokksins til að gegna áfram ráðherraembætti.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vildu ekki tjá sig við blaðamenn eftir fundinn.