Kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra fara fram laugardaginn 3. desember næstkomandi. Kjörstaðir verða bæði á Hvammstanga og á Borðeyri.
Fram kemur í tilkynningu á vef innanríkisráðuneytisins að sameining sveitarfélaganna tveggja hafi verið til umfjöllunar undanfarin misseri. Í Húnaþingi vestra eru liðlega 1.100 íbúar en kringum 100 manns búa í Bæjarhreppi. Haldnir hafa verið fundir með íbúum beggja sveitarfélaganna til að fjalla um fyrirhugaða sameiningu og fyrir liggur skýrsla KPMG þar sem fjallað er um áhrif sameiningar.