Segir Jóhönnu ekki geta hróflað við Jóni

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is

„Forsætisráðherra getur ekki tekið málaflokka af ráðherrum. Þær breytingar náðust ekki í gegn í haust þrátt fyrir einbeittan vilja forsætisráðherra,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni.

Vísar hann þar til orða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, um að endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða verði tekin frá sjávarútvegsráðuneyti Jóns Bjarnasonar vegna þess að hann hafi látið vinna tillögur að breytingum á lögunum án samráðs við aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar.

„Samfylkingin vill einn flokka halda þessari ESB vitleysu áfram og á meðan VG fylgir þeirri stefnu og ríkisstjórnin hefur nauman meirihluta þá getur Jóhanna Sigurðardóttir ekkert gert eða sagt,“ segir Ásmundur ennfremur í sömu færslu.

Hann segir það hafa sést vel síðustu daga hversu brothætt ástandið sé orðið innan ríkisstjórnarinnar „þegar hver Samfylkingarmaðurinn á fætur öðrum hefur komið fram og beinlínis hraunað yfir samstarfsflokkinn. Síðan hafa þeir sagt að ríkisstjórnin sé alls ekki að springa vegna þess að Samfylkingin telji meiri hagsmuni í húfi að halda stjórnarsamstarfinu áfram.“ Ásmundur spyr síðan hverjir þeir hagsmunir séu.

„Getur verið að ESB-kratar innan beggja stjórnarflokkana séu að verða brjálaðir og vilji losna við Jón Bjarnason vegna þess að hann neitar að aðlaga íslenskt regluverk að ESB áður en þjóðin segir hug sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu?“ segir hann síðan í annarri færslu á Facebook-síðu sinni.

Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, svarar síðari færslu Ásmundar á þessa leið: „Mundu nú það Ásmundur að þú ert genginn í Framsóknarflokkinn. Þú átt ekki að mæta á þingflokksund í Morgunblaðshöllinni í dag að verja Jón Bjarna. Þú átt að mæta á fund í þingflokki Framsóknar í Alþingishúsinu.“

Ásmundur var sem kunnugt er áður þingmaður VG en skrifstofur flokksins eru þar sem Morgunblaðið var eitt sinn til húsa við Aðalstræti.

Facebook-síða Ásmundar Einars Daðasonar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert