Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012, sem lögð var fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi síðdegis í dag, er gert ráð fyrir 105,6 milljóna króna rekstrarafgangi af samstæðu.
Sjö af ellefu bæjarfulltrúum standa að fjárhagsáætluninni eða fulltrúar þeirra fjögurra framboða sem mynda meirihluta í bænum auk fulltrúa Framsóknarflokksins.
Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ segir að í áætluninni sé áfram gert ráð fyrir þéttu aðhaldi í rekstri bæjarins en ekki miklum niðurskurði. „Rekstur bæjarins er samkvæmt áætluninni að styrkjast en framlegð samstæðu er áætluð tæplega 20%. Sem fyrr er lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustuna, leikskólana, grunnskólana og félagsþjónustuna.
Áfram verður unnið að þeim markmiðum sem sett voru við gerð síðustu fjárhagsáætlunar en samkvæmt þeim á að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs að minnsta kosti milljarð á ári ánæstu árum og stefna að því að veltufé frá rekstri samstæðu verði að minnsta kosti1,5 milljarðar á ári næstu árin. Í áætlun ársins 2012 verður niðurgreiðsla skulda um 1,4 milljarðar og veltufé frá rekstri samstæðu rúmir 2,4 milljarðar.
Gert er ráð fyrir því að tekjur aukist á næsta ári vegna nýgerðra kjarasamninga en að útgjöld aukist mikið að sama skapi vegna samninganna sem og vegna verðbólgu á árinu sem er að líða. Reiknað er með að ýmis álögð gjöld hækki til að standa undir auknum rekstrarkostnaði en að álagningahlutfall fasteignagjalda verði óbreytt.“