Í gær voru sett um varúðarskilti við vegamót á Suðurlandsvegi, en vegamótin eru ekki fullgerð. Lokið verður við þau næsta vor. Vegna tafa sem urðu vegna kærumála hófst vegagerðin seinna en áætlað var.
Vegfarendur á Suðurlandsvegi hafa tekið eftir því að vegamótin á nýja veginum eru nokkuð öðruvísi en þeir eiga að venjast. Vegamótin eru hönnuð með tilliti til umferðaröryggis og því verður 2+2 vegurinn í raun 1+1 vegur við vegamótin. Mun öruggara verður fyrir vegfarendur en áður að taka vinstri beygjur við vegamót Bláfjallavegar og sama á við um tengingu að Litlu kaffistofunni.
Vegna tafa sem urðu vegna kærumála hófust framkvæmdir seinna en áætlað var. Þetta veldur því að vegagerð er ekki að fullu lokið við vegamótin og hafa því verið sett upp skilti sem vara ökumenn við því að vegamótin séu ekki fullgerð. Vegamótin sem og framkvæmdin í heild verða fullgerð næsta vor og sumar.
Þrátt fyrir að umrædd vegamót séu ekki mislæg, líkt og á Reykjanesbrautinni, þá eru þau mun öruggari en þau sem voru fyrir á 1+1 vegi. Nú eiga þeir sem til dæmis eru að koma úr Bláfjöllum mun auðveldara með að beygja í átt til Reykjavíkur en áður, og öryggið er allt annað. Einungis þarf að fara yfir eina akrein, þar sem umferðin er á leið til Selfoss, vera vakandi fyrir því að bíll að austan gæti verið að beygja inn á Bláfjallaveginn, síðan er ekki annað en að klára vinstri beygjuna inn á auða akrein. Bíll sem tekur vinstri beygju kemst á sína akrein án hættu frá umferðinni að austan því sú umferð er á hægri akrein af tveimur en nefndur bíll á vinstri akreinni. Þannig kemst hann auðveldlega inn í umferðina sem er á leið til Reykjavíkur.