Glitnismennirnir þrír, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í fyrradag að ósk embættis sérstaks saksóknara, kærðu allir úrskurðina til Hæstaréttar í gær.
Yfirheyrslur munu halda áfram í dag. Sérstakur saksóknari segir að embættið sé að ljúka rannsókn á tíu málum sem tengjast hruninu og búist er við að ákærur verði gefnar út innan tíðar.