Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um reyk og reykjalykt í Háskólabíói um klukkan hálf tvö í nótt. Baggalútur hafði haldið þar útgáfutónleika fyrr um kvöldið og var verið að ganga frá eftir gleðina.
Við eftirgrennslan kom í ljós að reykurinn barst frá útiörnum sem stóðu fyrir utan bíóið og að enginn eldur var innandyra.