Móttaka til heiðurs Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara var haldin í Salnum síðdegis í dag í tilefni þess að hann hefur verið kosinn heiðursborgari Kópavogsbæjar. Hann er fjórði heiðursborgari bæjarins.
Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, sagði í ávarpi sínu að Jónas hefði komið að öllu hinu smæsta til alls hins stærsta í íslensku tónlistarlífi, allt frá því að kenna ungu fólki fyrstu skrefin á sviði tónlistar upp í það að vera sjálfur flytjandi á stærstu tónlistarviðburðum þjóðarinnar. Þá væru ónefndir stórviðburðir um heim allan sem Jónas hefði verið þátttakandi í, segir í tilkynningu.
Með heiðursborgaratitlinum vill bæjarstjórn Kópavogs sýna Jónasi þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar og tónlistaruppeldis.
Jónas hefur frá árinu 1994 starfað sem tónlistarráðunautur Kópavogs og var einn helsti hvatamaður þess að Salurinn, tónlistarhús Kópavogs, var byggður en húsið var vígt í janúar 1999. Hann mótaði m.a. verkefnið Tónlist fyrir alla sem miðar að því að fræða æsku landsins um tónlist og byggði upp tónlistarröðina Tíbrá.