Tveir menn um þrítugt reyndu að stela fullri innkaupakerru af matvöru, aðallega dýrara kjöti, í Krónunni í Kópavogi klukkan rúmlega sjö í kvöld.
Mennirnir hlupu út með innkaupakerruna og sturtuðu í aftursætið á bíl sínum og stungu af. Þeir náðust í bílnum ekki langt frá Krónunni og þá voru þeir búnir að troða hluta af fengnum í bakpoka. Þeir eru nú báðir í haldi lögreglunnar.
Ekki fékkst staðfest hvort Bjúgnakrækir og Ketkrókur eru komnir til byggða heldur fyrr en vanalega.