Eitthvað róttækt þarf að eiga sér stað í húsnæðismálum á Vestfjörðum ef hundruð starfa verða til í kringum fiskeldið.
Fulltrúar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða telja nauðsynlegt að byggja. Það mun reynast erfitt þar sem skortur er á iðnaðarmönnum og mjög dýrt er að byggja á svæðinu vegna mikils flutningskostnaðar.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að byggingarfyrirtæki geta ekki byggt þar sem markaðsverð er langt undir kostnaðarverði.