Engir miðar eru eftir á tónleika tónlistarmannsins Mugisons í Hörpu 22. desember nk. Gríðarleg ásókn var í dag eftir miðunum og lá midi.is niðri um tíma legið vegna fjölda heimsókna á síðuna.
Mugison bætti við þriðju tónleikunum í Eldborg þennan dag og verða tónleikarnir kl. 18:30, 21:30 og á miðnætti en eins og auglýst hefur verið er aðgangur ókeypis. Kynningarfulltrúi Hörpu sagði í gær að ekki væri hægt að ábyrgjast að miðasölukerfið anni álaginu en reynt verði að tryggja það.