Vanhæfur vegna athugasemdar eiginkonu

Ólafur Jónsson bæjarfulltrúi á Akureyri
Ólafur Jónsson bæjarfulltrúi á Akureyri

Nokkuð sérstök staða kom upp við upphaf fundar í bæjarstjórn Akureyrar í gær er fjallað var um deiliskipulag Dalsbrautar sunnan Þingvallastrætis. Var bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Jónsson, talinn vanhæfur þar sem eiginkona hans hafði sent inn athugasemd vegna deiliskipulagsins. Þetta kemur fram í frétt á vef Vikudags.

Í atkvæðagreiðslu fyrir þann lið var Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, úrskurðaður vanhæfur til að fjalla um málið, þar sem átta bæjarfulltrúar töldu Ólaf vanhæfan en tveir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með því að Ólafur væri hæfur. Ólafur vék því sæti á meðan þessi liður var afgreiddur og tók Njáll Trausti Friðbertsson varabæjarfulltrúi sæti hans í staðinn.

Ólafur hefur ekki verið fylgjandi lagningu Dalsbrautar og viljað fresta framkvæmdum en fram kom í máli Njáls Trausta á fundi bæjarstjórnar að hann væri fylgjandi framkvæmdinni. Meirihluti skipulagsnefndar lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan yrði samþykkt með breytingum sem gerðar voru síðasta fundi nefndarinnar. Deiliskipulagstillagan var samþykkt í bæjarstjórn með níu atkvæðum gegn tveimur. Það er því orðið ljóst að ráðist verður í lagningu Dalsbrautar, frá Þingvallastræti suður að Miðhúsabraut, á næsta ári.

Ástæða þess að greidd voru atkvæði um hæfi Ólafs til að fjalla um málið er m.a. sú að kona hans hafi sent inn athugasemd við framkvæmdina í auglýsingaferlinu. Sjálfur taldi Ólafur sig ekki vanhæfan til að taka þátt í afgreiðslu málsins.

Sjá nánar á vef Vikudags

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert