Starfsfólk Iceland Express með rautt nef

Starfsfólk Iceland Express tekur þátt í degi rauða nefsins á …
Starfsfólk Iceland Express tekur þátt í degi rauða nefsins á morgun

Starfsfólk Iceland Express tekur þátt í degi rauða nefsins til söfnunar UNICEF og munu flugliðar og þjónustufólk IEX á Keflavíkurflugvelli bera rauða nefið við innritun í flugvélar í fyrramálið, sem og um borð í flugvélunum. Við innritun verður farþegum boðið upp á hressingu og tónlistarmaðurinn Pálmi Sigurhjartarson úr Sniglabandinu mun skemmta fólki við innritunarborðið, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert