Fremur erilsöm nótt

Nóttin var fremur erilsöm hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Flest verkefni næturinnar tengdust skemmtanalífinu. Einn var tekinn við meintan ölvunarakstur og sex gistu í fangageymslum lögreglunnar. Talsvert var um sjúkraflutninga hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Liðsmenn slökkviliðsins höfðu farið í um þrjátíu sjúkraflutninga á næturvaktinni þegar klukkan var að nálgast sjö í morgun. Það þykja talsverðar annir á einni vakt. Dælubílar slökkviliðsins höfðu ekki verið sendir úr húsi í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert