Óveður er á Austfjörðum og með norðurströnd landsins. Eru vegir víðast hvar flughálir að sögn Vegagerðarinnar.
Fram kemur í tilkynningu að norðaustanlands sé ófært á Víkurskarði. Þæfingsfærð og skafrenningur sé á Hólasandi og skafrenningur í kringum Mývatn. Ófært er á Hófaskarðsleið. Flughálka og óveður er með allri ströndinni.
Á Austurlandi er þungfært á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðaheiði og flughálka er á öllum vegum í kringum Egilsstaði og Reyðarfjörð. Ófært og stórhríð er á Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra, einnig er ófært á Oddsskarði en unnið er að hreinsun þar.
Það eru hálkublettir á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða einhver hálka eða jafnvel snjóþekja.
Suðurstrandarvegur er ófær sem og Krýsuvíkurleið.
Á Vesturlandi er víðast snjóþekja eða hálka.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er á Gemlufallsheiði og Þröskuldum en unnið er að mokstri.
Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Snjóþekja og stórhríð er á Öxnadalsheiði.
Á Suðausturlandi er hálka og snjóþekja. Þæfingsfærð er í kringum Vík.