12,5% hækkun hjá Selfossveitum

Hækkunin var samþykkt í framkvæmda- og veitustjórn Árborgar.
Hækkunin var samþykkt í framkvæmda- og veitustjórn Árborgar. mbl.is/Sigmundur

Framkvæmda- og veitustjórn Árborgar hefur samþykkt samhljóða 12,5 % hækkun á gjaldskrá Selfossveitna, sem tekur gildi á fyrstu mánuðum nýs árs. Fréttablað Suðurlands greinir frá þessu.

Í frásögn á vef Fréttablaðs Suðurlands segir að sérstaka athygli veki í fundargerð „að Bjarni Harðarson, fulltrúi V-lista og Eggert Valur Guðmundsson, fulltrúi S-lista samþykktu hækkunina í gegnum síma en eru bókaðir í fundargerðinni sem mættir.“

Fram kemur skv. greinargerð um hækkunina að ástæður hennar séu að verðlag hafi breyst með þeim hætti að byggingarvísitala frá 2010 hafi hækkað um 10,7 % sl. 12 mánuði  skv. vef Hagstofu Íslands. Gert sé ráð fyrir að verðbólga næsta árs verði yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Gjaldskrá Selfossveitna sé ekki vísitölubundin og því er fyrirséð að hækka þurfi gjaldskrána til að vega upp á móti hækkandi rekstrar- og framkvæmdakostnaði til að áætlanir um hæfilegan rekstrarafgang til framkvæmda fái staðist.

Stærstu framkvæmdir næsta árs eru m.a. borun eftir heitu vatni og 1. áfangi í tvöföldun aðveitulagnar frá Laugardælum. Gert er ráð fyrir á annað hundrað milljónum í nauðsynlegar fjárfestingar árið 2012.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert