Heildarlaunakostnaður lækkar

Heildarlaunakostnaður á þriðja ársfjórðungi
Heildarlaunakostnaður á þriðja ársfjórðungi Af vef Hagstofu Íslands

Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman á þriðja ársfjórðungi frá fyrri ársfjórðungi um 2,1% í iðnaði, 2,4% í samgöngum, 5% í byggingarstarfsemi og um 6,5% í verslun.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 5,5% í iðnaði, 0,5% í samgöngum og um 0,2% í byggingarstarfsemi og verslun. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 3. ársfjórðungi 2010 var á bilinu 5,3% til 8,3%. Mest var hækkunin í samgöngum en minnst í iðnaði. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í byggingarstarfsemi eða 7,6% en minnst í verslun 5,1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert