Stórhríð á Öxnadalsheiði

Á Norðausturlandi er snjór og stórhríð á Öxnadalsheiði og snjór á vegum í Eyjafirðinum með snjókomu eða éljagangi. Snjór og skafrenningur er í Víkurskarði. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hólasandi. Snjór er á flestum öðrum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Mývatnsöræfum.

Á Norðvesturlandi er hálka og skafrenningur í Húnavatnssýslum. Hálka og skafrenningur er í Vatnsskarði, á Þverárfjalli og í Skagafirðinum en snjóþekja á flestum öðrum leiðum. Snjóþekja og óveður er á Siglufjarðarvegi.

Það eru hálkublettir á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða einhver hálka, hálkublettir eða snjór á vegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hálkublettir eða hálka er víða á Suðurnesjum og hálka á Suðurstrandarvegi. Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur er á flestum fjallvegum. Gemlufallsheiði, Hálfdáni, Mikladal og Þröskuldum. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði.

Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði, Fagradal og Oddskarði. Flughált er á Borgarfjarðvegi og þungfært og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Á öðrum leiðum er hálka eða snjóþekja. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Á Suðausturlandi er hálka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert