Tveir starfsmenn tveggja mismunandi símafyrirtækja eru taldir hafa látið grunaða menn í rannsóknum hjá embætti sérstaks saksóknara vita að verið væri að hlera síma þeirra. Heimildir Fréttablaðsins herma að embættið hafi lagt fram tvær kærur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH) vegna þessa.
Starfsmennirnir liggja undir grun um að hafa látið aðila sem eru til rannsóknar vegna meintra brota Milestone og annars ónefnds félags vita að fyrirtækjunum sem þeir starfa hjá hefði borist beiðni frá lögreglu um að símar þeirra yrðu hleraðir.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vaknaði fyrst upp grunur innan embættis sérstaks saksóknara sumarið 2009. Þá fékk maður sem var til rannsóknar í tengslum við málefni Sjóvár og Milestone vísbendingar um að sími hans væri hleraður. Sérstakur saksóknari kærði málið til LRH þar sem embættið gat ekki rannsakað það sjálft.
Í janúar 2010 vöknuðu síðan grunsemdir um að annar einstaklingur sem var til rannsóknar hjá embættinu hefði verið látinn vita að sími hans væri hleraður. Talið var að háttsettur starfsmaður innan Skipta-samstæðunnar, sem á meðal annars Símann, hefði látið hinn grunaða vita um hlerunina. Viðkomandi starfsmaður var yfirheyrður hjá LRH vegna málsins. Hann hefur látið af störfum.