Landsbankinn hefur ákveðið að fella niður fjölda lána sem Sparisjóðurinn í Keflavík veitti einstaklingum og lögaðilum vegna kaupa á nýju stofnfé í SpKef, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga í lok árs 2007.
Með þessum ákvörðunum Landsbankans verður endir bundinn á óvissu í málum þeirra einstaklinga og lögaðila á landsbyggðinni sem fengu lán til kaupa á stofnfé í fyrrnefndum sparisjóðum í árslok 2007.
Viðurkenna að ráðgjöf til kaupenda hafi ýmist verið röng eða ófullnægjandi
Jafnframt felur þessi niðurstaða í sér viðurkenningu á því að ráðgjöf til kaupenda vegna þessarar stofnfjáraukningar hafi af hálfu viðkomandi sparisjóða verið ýmist röng eða ófullnægjandi, segir í tilkynningu frá Landsbankanum.
Þann 24. nóvember 2011 dæmdi Hæstiréttur Íslands í málum vegna aukningar stofnfjár í Byr sparisjóði og Sparisjóði Norðlendinga í lok árs 2007. Niðurstaðan fól í sér að stofnfjáreigendur voru sýknaðir af kröfum um greiðslu lána sem veitt voru til kaupa á stofnfé í sparisjóðunum við stofnfjáraukningu þeirra.
Um er að ræða rétt rúmlega 500 lán til einstaklinga og 30 lán til lögaðila sem eru nú á bókum Landsbankans eftir samruna við Spkef í mars á þessu ári.
„Með vísan til niðurstöðu í áðurnefndum dómum mun Landsbankinn fella flest þessara lána niður að eigin frumkvæði. Þetta er þó ekki án undantekninga, t.d. ef stofnfjárbréf hafa verið seld en andvirðinu ekki ráðstafað til greiðslu lánsins eins og samkomulag var um.
Bankinn mun strax yfirfara öll stofnfjárlán sem þarna um ræðir og tilkynna hverjum og einum lántaka sérstaklega um niðurstöðuna.
Þær greiðslur sem lántakar hafa innt af hendi til Landsbankans og/eða Spkef vegna þeirra lána sem nú verða felld niður, verða endurgreiddar," segir í tilkynningu.