Yfir 90% með jólatré

Jólatré verða á flestum heimilum á Íslandi þessi jól líkt …
Jólatré verða á flestum heimilum á Íslandi þessi jól líkt og fyrri ár Reuters

Jólatré verður á nánast öllum heimilum á Íslandi um þessi jól ef marka má könnun MMR. Alls sögðust 90,6% þeirra sem svöruðu könnuninni ætla að setja upp jólatré.

Í sömu könnun MMR fyrir ári sögðu 91,2% að það yrði jólatré á sínu heimili um jólin. Skipt eftir einstökum svörum sögðust 39,3% ætla að hafa lifandi jólatré á sínu heimili þessi jólin, 51,3% gervitré og 9,4% ætluðu ekki að hafa neitt jólatré.

Sjá nánar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert