Þingsályktunartillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um niðurfellingu málshöfðunar Alþingis á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verður tekin fyrir ekki síðar en 20. janúar nk., sem hluti af samkomulagi við forseta Alþings um frestun þingfunda í dag.
Bjarni segist miðað við aðstæður sáttur við að komist hafi verið að samkomulagi um að tillagan verði tekin fyrir strax í fyrstu þingviku næsta árs. „Allar hugmyndir um að halda málinu frá þinginu og frá umræðu voru frá upphafi fullkomlega óraunhæfar,“ segir Bjarni.
Það sé grundvallaratriði að tillagan fáist rædd, og segist hann enn telja að hún njóti stuðnings meirihluta á þinginu. „Það er mjög áríðandi að saksóknari Alþingis fái úr því skorið hvort hann nýtur stuðnings meirihluta þingsins til þess að halda málsókninni áfram.“