Vegagerðin segir að ljósmynd af grjóti í Oddskarðsgöngum sé af grjóti sem hafi verið losað. Ekki sé um að ræða grjót sem hrundi, líkt og fram hafi komið.
Myndin, sem var birt á Facebook og fjallað var um á mbl.is, sýni því ekki grjót sem hafi hrunið.
Segir á vef Vegagerðarinnar að svæðið hafi verið merkt vinnusvæði og verktakinn, sem hafi verið að hreinsa þar, hafi verið á leið út með annað efni sem hafði losnað úr gangaveggnum. Verktakinn hafi varað vegfarandann á myndinni við steininum, en verktakinn hafði skilið hann eftir í vegkantinum. Segir að steininn hafi verið tekinn niður á öðrum stað úr gangavegg og hafði því alls ekki hrunið út göngunum.
„Morguninn 14. desember hrundi smátt grjót úr gangavegg í Oddskarðgöngum inn á veg á um 5 m löngu svæði þar sem er kargi í gangavegg. Snjómokstursverktaki Vegagerðarinnar sem kom að þessu um kl. 6 um morguninn hreinsaði grjótið af akbrautinni, en nokkuð var af lausu grjóti sem var utan í gangaveggnum var það hreinsað upp á milli kl. 8 og 9. Starfsmenn Vegagerðarinnar skoðuðu aðstæður í framhaldinu um morguninn. Bergið (karginn) þarna var laust í sér og var að springa frá veggnum í stærri stykkjum. Ákveðið var í framhaldinu að skrota (losa um allar sprungur) og hreinsa svæðið sem var gert aðfaranótt 15. desember undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Þegar unnið var við að flytja efnið sem losað var frá veggnum á umræddu svæði var steinn tekinn niður á öðrum stað sem hafði verið skorðaður við styrktargrind í gangavegg í útskotinu að norðanverðu,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
„Myndin sem um ræðir er af þessum steini, því að samkvæmt upplýsingum frá verktakanum sem var á gröfunni og vann fyrir Vegagerðina, skildi hann steininn eftir í vegkantinum á meðan hann var að fara út úr göngunum með annað efni. Verktakinn aðvaraði vegfarandann sem er á umræddri mynd og var þarna á ferðinni um að steinninn væri inn á akbrautinni og hann tæki hann á eftir. Göngin voru merkt sem vinnusvæði og umferðartafir vegna vinnu í jarðgöngum auglýstar á heimasíðu Vegagerðarinnar,“ segir ennfremur.
Tekið er fram að fylgst sé með ástandi gangana eftir megni. Vegagerðin láti m.a. snjómokstursverktakann, sem sé þarna mikið á ferðinni og þekki vel til, vakta hvort eitthvert laust grjót sé á eða við akbraut.