Innanríkisráðuneytið segir að öryggis sé gætt í Oddsskarðsgöngum. Eftir sérstaka skoðun á göngunum sl. sumar sé það mat vegamálastjóra að hverfandi hætta sé á hruni úr lofti Oddsskarðsganga.
Fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins að öryggi í Oddsskarðsgöngum hafi verið til umfjöllunar að undanförnu. Fram hafi komið staðhæfingar um að lífshættulegt sé að fara um göngin meðal annars vegna grjóthruns og hefur verið staðhæft að hnullungar hafi hrunið úr lofti ganganna sem valdið hafi lífshættu.
„Hið rétta er að smátt grjót hrundi úr gangavegg á veginn á um 5 km kafla að morgni 14. desember. Vegagerðin greip þegar til ráðstafana, lét hreinsa grjótið og var ákveðið að losa um sprungur og hreinsa svæðið sem var gert næstu nótt. Í framhaldinu var síðan efni sem tekið var niður flutt út úr göngunum og þar með talinn steinn sem tekinn var niður á öðrum stað, geymdur um stund í vegkantinum meðan öðru efni var ekið út,“ segir á vef innanríkisráðuneytisins.
„Þetta hefur orðið tilefni umræðna um grjóthrun og hættu. Af því tilefni hefur vegamálastjóri upplýst að eftir sérstaka skoðun á göngunum á liðnu sumri sé hverfandi hætta á hruni úr lofti ganganna og að auki er öryggisnet sem tæki við grjóthruni ef til þess kæmi. Molnað getur úr veggjum og hrunið á nokkrum stöðum þar sem berg er veikt. Engin dæmi eru um að grjót hafi hrunið úr lofti og fallið beint á akbrautina,“ segir ennfremur.