Verða að afhenda orku

Orkusölusamningur Norðuráls og HS Orku er í fullu gildi og er HS Orka skuldbundin til að afhenda Norðuráli orku til álvers í Helguvík. Þetta er niðurstaða gerðardóms.

Norðurál hefur fengið niðurstöðu úr gerðardómsmáli við HS Orku, varðandi orkuafhendingu til álvers félagsins í Helguvík. 

Gerðardómurinn komst að þeirri niðurstöðu að orkusölusamningur aðila væri í fullu gildi, og að HS Orka væri skuldbundin til að afhenda Norðuráli þá raforku sem samningurinn tilgreinir í samræmi við skilmála hans, segir í tilkynningu frá Norðuráli.

„Við erum ánægð með niðurstöðu gerðardómsins og vonumst til þess að Norðurál og HS Orka geti tekið höndum saman við að koma framkvæmdum í Helguvík á fullan skrið sem allra fyrst" segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, í tilkynningu.

Í tilkynningu frá HS Orku kemur fram að niðurstöður gerðardómsins voru ekki einhliða þar sem báðir aðilar fengu jákvæða niðurstöðu í ákveðnum atriðum kröfugerðar sinnar.

„Þó að úrskurðurinn kveði á um ákveðna afhendingarskyldu HS Orku til hins nýja álvers er sú afhendingarskylda háð því að uppfyllt verði nokkur skilyrði sem gerðardómurinn úrskurðaði að ekki hefðu verið uppfyllt. Gerðardómurinn hafnaði kröfu Norðuráls um skaðabætur.

HS Orka mun vinna með Norðuráli að því að ná ásættanlegri niðurstöðu varðandi þau atriði sem upp hafa komið með þessum úrskurði."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert