Stjórn foreldrafélaga í leikskólum Akureyrar hvetur foreldra til þess að mæta á fund í kvöld þar sem rætt verður um fyrirhugaða breytingu á morgunverðum í leikskólum. Tæplega 600 foreldrar skrifuðu undir lista í síðustu viku þar sem breytingunni er mótmælt.
Boðað er til kynningarfundar með foreldrum barna í leikskólum í sal Brekkuskóla þriðjudaginn 20. desember kl. 20. Fundarefni er fyrirhugaðar breytingar á morgunverði í leikskólum Akureyrarbæjar.
Á fundinum verða kynntar fyrirhugaðar breytingar og ástæður þeirra. Á eftir kynningunni munu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Preben Jón Pétursson varaformaður skólanefndar, Gunnar Gíslason fræðslustjóri og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi, sitja fyrir svörum.