Össur gæti ekki hagsmuna Íslands

Advice-hópur á blaðamannafundi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Mynd úr safni.
Advice-hópur á blaðamannafundi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Advice hópurinn, sem barðist fyrir því að fá Icesave-samninga í þjóðaratkvæði, segir m.a. í ályktun sinni að afar óæskilegt sé að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra muni gæta hagsmuna Íslands í Icesave-málinu. Er skorað á ríkisstjórnina að endurskoða þá ákvörðun.

Advice-hópurinn vekur athygli á því að ríkisstjórnin, sem taldi rétt að samþykkja Icesave samningana, sé í þröngri stöðu, sérstaklega hvað varðar að halda uppi vörnum í málinu fyrir EFTA dómstólnum. „Hætt er við að ríkisstjórn, sem kaus að samþykkja slaka samninga, sé hvorki sannfærð um traustan málstað Íslands, né sannfærandi frammi fyrir dómstólnum," segir í ályktun sem hópurinn hefur sent fjölmiðlum.

„Draga má í efa að ríkisstjórn, sem kennd hefur verið við „afleik aldarinnar“, geti notið fyllsta trausts þjóðarinnar í málinu. Það að ganga gegn bókun meirihluta utanríkisnefndar um fyrirsvar málsins bætir ekki úr skák.

Það er afar óæskilegt að utanríkisráðherra sé ætlað forræði á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og jafnframt að gæta hagsmuna Íslands í Icesave málinu. Skorað er á ríkisstjórnina að endurskoða þá ákvörðun.

Að lokum vill Advice hópurinn árétta mikilvægi þess að vörnin verði tekin föstum tökum. Það verður ekki gert án þess að teflt verði fram færustu sérfræðingum. Einnig má ekki vanrækja að kynna málstað Íslands fyrir erlendum fjölmiðlum og álitsgjöfum," segir ennfremur í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka