Gangi áform stjórnvalda eftir um 27% veiðigjald af vergri framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 1.245 milljónir króna á ári m.v. fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári. Þetta kemur fram á vef LÍÚ.
„Þetta má leiða út úr svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars Kr Guðfinnssonar alþingismanns. Til þess að setja þessa skattgreiðslu í samhengi við áþreifanlegt dæmi, þá nemur þessi fjárhæð hátt upp í kaupverðið á hinum nýja togara Vestmannaeyinga, Þórunni Sveinsdóttir VE 401.
Þessi áform stjórnvalda munu hafa mjög alvarleg áhrif á fjárhagslega stöðu fjölmargra sjávarútvegsfyrirtækja og byggðarlög. Viðbúið er að fjöldi fyrirtækja muni neyðast til að hætta rekstri, sameinast arðbærustu fyrirtækjunum eða þau lendi í þroti," segir á vef LÍÚ.
Listi yfir heimahafnir og tilgreindar þær fjárhæðir sem viðkomandi útgerðir í viðkomandi byggðarlögum munu greiða, gangi þessi áform eftir.