Hvetja til samninga um orkusölu

Orkuver HS Orku.
Orkuver HS Orku.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti samhljóða í gærkvöldi bókun þar sem því er fagnað að nú liggi fyrir niðurstaða gerðardóms í deilumáli HS Orku og Norðuráls varðandi orkusölu til álvers í Helguvík.

„Báðir aðilar hafa lýst því áður yfir við forsvarsmenn Reykjanesbæjar að í kjölfar niðurstöðunnar, hver sem hún verði, muni þeir setjast niður og vinna að samningum.

Bæjarstjórn hvetur til þess að sú vinna hefjist án tafar svo unnt sé að veita á annað þúsund manns vinnu við uppbyggingu álversins frá miðju ári 2012," segir í bókuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert