Veðurstofan varar við stormi á Suður- og Vesturlandi í kvöld en það gengur í austan 13-18 með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu á sunnanverðu landinu í dag. Hægari fyrir norðan og snjókoma eftir hádegi en slydda eða rigning um kvöldið. Hlýnandi veður. Snýst í vestan 15-23 með skúrum eða slydduéljum sunnan og vestanlands í kvöld.