Launalækkun dregin til baka

Launalækkun þingmanna og ráðherra hefur verið dregin til baka
Launalækkun þingmanna og ráðherra hefur verið dregin til baka mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Kjararáð úrskurðaði í gær að draga til baka launalækkanir þeirra sem heyra undir kjararáð. Má þar nefna þingmenn og ráðherra. Laun þeirra lækkuðu þann 1. janúar 2009 um 5-15%. Samkvæmt úrskurði Kjararáðs í gær er sú launalækkun nú dregin til baka.

Kjararáð tók þá ákvörðun hinn 27. desember 2008 að laun alþingismanna skyldu lækka um 7,5% og laun ráðherra um 14-15% frá 1. janúar 2009.

Hinn 23. febrúar 2009 tók kjararáð ákvörðun um að laun embættismanna, annarra en dómara og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands, skyldu lækka um 5-15% og tók sú ákvörðun gildi 1. mars 2009. Þá ákvað ráðið hinn 10. mars 2009 sambærilega lækkun launa dómara frá 15. mars 2009. Ákvörðun um lækkun launa skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands var tekin 17. júlí 2009 og tók hún gildi 1. ágúst sama ár.

Þannig sættu allir þeir sem undir ákvörðunarvald kjararáðs heyrðu á þessum tíma lækkun launa á grundvelli laga sem sett voru árið 2008, að frátöldum forseta Íslands.

Lækkun launa hvers og eins var miðuð við að lækkunarhlutfallið færi sem næst línu sem markaðist af tveimur punktum, þannig að heildarlaun sem voru 1.125.000 krónur á mánuði lækkuðu um 15% og heildarlaun sem voru 450.000 krónur á mánuði lækkuðu um 5%.

Lækkun launa kom fyrst og fremst fram í lækkun einingaverðs og fækkun eininga. Einingaverð skyldi miðast við 126. launaflokk í stað 132. launaflokks áður. Mánaðarlaun lækkuðu því aðeins að markmiði laganna yrði ekki náð með öðru móti. Innheimtulaun sýslumanna lækkuðu.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka