Norðlenska færði í dag Styrktarfélagi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga 100.000 krónur að gjöf. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að þetta sé áttunda árið í röð sem fyrirtækið hefur þann háttinn á að senda ekki jólakort heldur færa stofnun eða samtökum mat eða peninga að gjöf.
Þetta árið kom það í hlut starfsstöðvarinnar á Húsavík að færa þessa gjöf. Sigmundur Hreiðarsson stöðvarstjóri Norðlenska á Húsavík sagði það bæði heiður og ánægju að veita félaginu peningagjöfina.
„Við sem samfélag eigum þessu félagi mikið að þakka, því Heilbrigðisstofnunin okkar er svo sannarlega einn af hornsteinum þess að hér er gott að búa. Því er áríðandi að við leggjumst öll á eitt til að hún geti starfað og veitt okkur öllum þá þjónustu og það öryggi sem allir eiga rétt á og hún hefur veitt okkur hingað til með sóma,“ sagði Sigmundur.
Svala Hermannsdóttir tók við peningagjöfinni fyrir hönd Styrktarfélagsins í hádeginu í dag í húsnæði Norðlenska. Hún þakkaði vel fyrir og sagði þetta ekki í fyrsta skipti sem Norðlenska legði sitt af mörkum í þessari baráttu.