Bubbi syngur á Þorláksmessu

Bubbi með gítarinn í Háskólabíói.
Bubbi með gítarinn í Háskólabíói. mbl.is/Golli

Bubbi Morthens hélt uppteknum hætti og hélt Þorláksmessutónleika í kvöld eins og hann hefur gert á hverri Þorláksmessu í meira en 20 ár. Uppselt var á tónleikana sem fram fóru í Háskólabíói.

Fyrir marga eru Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens ómissandi liður í undirbúningi jólanna. Tónleikunum var útvarpað á Bylgjunni eins og síðustu ár.

Fyrstu tónleikarnir sem Bubbi hélt á Þorláksmessu voru á Hótel Borg. Síðar færði hann sig yfir á NASA við Austurvöll og síðustu ár hafa tónleikarnir verið í Háskólabíói.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert