Tveir dópaðir ökumenn og einn ölvaður

Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í Keflavík í nótt og sá þriðji vegna ölvunaraksturs.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum var dálítill erill í umdæminu í nótt og eitthvað um ölvun í bænum. Meðal annars gerðist það að ölvaðir menn stigu upp í aðra rútu en þeir ætluðu sér upp í og enduðu á röngum áfangastað, og þurfti að hjálpa þeim að komast til síns heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert